Verð að viðurkenna að ég er spæld. Allt það merkilega sem ég var
að setja inn rétt áðan er horfið. Bara út í loftið og ég sem hafði
ekki vit á að afrita það eins og dóttir mín er alltaf að segja mér
að gera. Jæja ég er svo þrjósk að ég ætla að reyna aftur.
Ég ætlaði nefninlega að ljóstra upp tveim uppskriftum. Aðra af
karamellukonfekti tók ég af einni átaksbloggsíðu en finn það ekki
aftur og þar sem alian var að spyrja mig svara ég bara hér og nú og
skítt með þó það flokkist undir ritstuld.
Karamellukonfekt: 30 gr. léttmayones, 10 gr. hveiti, 5 gr. kakó,
2 tsk sætuefni, 1 tsk karamelludropar, 2 dropar vanilludropar, 1
tsk lyftiduft. Blanda saman, útbúa pylsu og skera niður í þrjá
bita. Baka á bökunarpappír í ofn við 180 gráður í ca 10mín. Brussan
ég setti þetta bara með skeið á pappírinn, ca 6 kökur og bakaði í
10 mín.
Ég gerði líka góðar lummur: Sjóða 30 gr. af grautargrjónum í 2
dl af fjörmjólk í ca 20 mínútur. Kæla og bæta síðan 1 eggi og 10
gr. af hveiti saman við. Smá sætuefni ef vill (ég sleppti því af
því ég er svooooo sæt). Baka á pönnu ég fékk ca 8 klatta út úr
þessu en auðvitað fer það eftir stærð. Má setja smá olíu á pönnuna
ef þarf og vill. Borða síðan með sykurlausri sultu. Ég borðaði
þetta sem hádegisverð, bætti bara grænmetisskamti við. Sennilega má
líka borða þetta sem morgunverð.
Ekki meira í bili nema trúa ykkur fyrir því að ég er ansi aum í
fótunum vegna Orbitreks-göngu. Get ekki nema tæpar 10 mínútur í
einu en er búin að fara þrisvar í dag og kannski lagast þetta næstu
daga og þrek og kraftur eykst.
Gullkorn úr hamingjusporum:
Trjábolur á hæð við mann vex af frækorni sem er minna en
augasteinn hans. Turn sem nær til himins er byggður úr dálítilli
hrúgu af grjóti. Ferð á enda heimsins hefst á blettinum fyrir
framan þig. (Lao Tzu)
Láttu þér aldrei detta í hug að þúeigir ekkert eftir ólært.